Donbas
Útlit

Donbas eða Donbass er sögulegt, menningarlegt og efnahagslegt svæði í suðaustur-Úkraínu. Nafnið vísar til Donetsk lægðarinnar (á umritaðri úkraínsku: Donetskyi vuhilnyi basein) sem er mikilvægt kolavinnslusvæði. Það samanstendur af héruðunum Donetsk og Lúhansk. Frá 2014 risu upp aðskilnaðarhreyfingar rússneskumælandi íbúa í hluta héraðana. Árið 2022 réðst svo Rússland inn í héruðin í stríði sínu gegn Úkraínu. Borgin Maríúpol og fleiri borgir voru þá lagðar í rúst. Rússland ræður meirihluta svæðisins og stefnir á að ná því öllu [1] (2026).
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Vísir, sótt 13. maí 2026